Pétur Pan = Agnesa ;-)

Plakat 8 FullElsku elsku Nesa-pesan mín,ég elska þig ógurlega mikið og þessi mynd mynnir mig svakalega á þegar þú varst alltaf að leika pétur pan, þú lifðir þig algerlega í hlutverkið InLove

Amma bezta elskar þig óendarlega-mikið, rúsínu-rassgat ömmzlu sín InLove hí hí hí

Æ LOV JÚ


ÆÆÆ,,þessi dagur !

WinkJæja þá rann upp þessi dagur, fluttningardagur hjá elsku dottlunni minni. Dagurinn sem ég kveið mjög mikið. En í dag þegar við vöknuðum og fórum að hjálpa var bara fínn, já mjög fínn.Ömmubörnin voru hjá ömmu beztu í nótt og naut ég þess mjöööööög !! það var vaknað og gefið morgunmat, einn vildi bara kókópuffs (en kókopuffs er eitthvað sem allar ömmur verða að eiga, d.t. hún Nesan mín fær bara kókopuffs hjá ömmu, alveg eins og þegar ég var lítil þá fékk ég bara kókopuffs max-þrisvar á ári)Sindri minn vildi sko hafragrautinn sinn meeeeeð kannnel NAMMMM !svona stjanaði ég í morgun, og með þvílíkri gleði í hjartanu InLove ælovet !

lovet..lovet..InLove Það var mikil spenna hjá börnunum, þau vissu ekkert hvert þau voru að fara og í spjalli okkar í morgun þá voru þau alveg sammála að þeim langaði ekkert að flytja til Rvk. En svo þegar þangað var komið, íbúðin var ÆÐI og staðurinn er ÆÐI og það voru allir svaka ánægðir meir að segja ÉG Crying og ég fékk þá tilfinningu í hjartað að ÞETTA VAR ÆÐI InLove meirað segja unglingurinn var í stuði og fanst herberkið ÆÐI InLove æ..... ég bara ættla að hafa þau í bænum mínum á hverjum degi og bið fyrir því að allir finni sig og líði vel, "Hvað" annað getur mar gert ? þETTA ER LÍFIÐ Heart Unglingurinn= Nesan kom reyndar með á Skagann og er ég að vaka eftir henni núna, hún er úti enda er sjómannadagshelgin og GLÆTAN að hún ættlaði að missa af því svona er unglingasjómannadagshelgin, en hún er nú að fara að koma heim "rétt bráðum" eða kl eitt InLove Jæja þetta er nú allt sem amma bezta hefur að segja þennan daginn, og bara vil minna á að ef þú ert neikvæður þá er allt mjög ömurlegt, en ef þú bara gerir gott úr öllu og huxar bara í jáinu, já elskan mín eða æ.. elsku vinur ..skrítið þá bara verður allt svo jákvætt. Þetta er bara svo STAÐREINT.....

En æ lov jú all merry merry möts InLove sí jú InLove og farið nú með bænirnar, Á hverjum degi InLove

                                                  Kveðja amma bezta á skaganum InLove in love

Spakmæli ömmu beztu= það skiptir ekki máli hvar þú ert búsett, BARA ef þér líður vel InLove


Isl & Svenska för min Mia

Já sko ég ætla mér ekki að láta líða svona langt á milli blogga attur nei,,nei, en það er svosem ekkert sérstakt sem poppar upp í hausinn á mér er nú bara frekar tómur. En ennþá bíð ég eftir hitanum og sólinni já bara sumrinu, vonandi að við fáum nú smá sumar eigum það sko skilið, eða það finst mér. Annars er dottlan mín að fara að flytja til rvk á laugardaginn og mér er farið að kvíða all svakalega fyrir því, ég veit að hún er bara að fara til höfuðborgarinnar hefði nú getað verið út fyrir landið, en allir fjórir gullamolarnir mínir Frown ég sagði eitt sinn að ég væri þvílíkt heppin amma og þvílik forréttindi að hafa börnin mín og barnabörn í sama bæjarfélagi og ég. Ég veit ekkert dásamlegra en dyrabjallan hringir og úti stendur barnabarn mitt þá búinn að hjóla til mín og segir amma ég er soldið svangur (eða eins og Sindri sagði smangur)eða fá að fara heim af leikskólanum með þau, ég er að vinna á sama leikskóla og þau hafa verið á. Eigingirni neee " forréttindi". En nú bara verð ég versogoo að fara að kaupa mér áskrift í bussinn = strætó Pinch  jess ! Ég veit að hún Mía mín frá Sverige kíkir hér inn í bland og núna ætla ég að skrifa smá til hennar á sænsku: Hej Mia det var jätteroligt att du hörde af dig, jag har läst ditt blogg och som jag har fattad då håller du med att flytta och byta jobb. Vart ska frun flytta och vad ska hun sysla med ? Gumman hoppas att du hör av dig och har det bra. kramar till dig InLove Det var det , det ! Jæja eins gott að fara að koma sér í háttinn, á morgun verður GRILLHÁTÍÐ á leikskólanum og meir að segja sjálfur íþróttaálfurinn mætir vá vá vá ekkert smá fjör þar, börnin verða örugglega tryllt af gleði og audda verður amma bezta að vera sonna sæmileg erþaggibara

Þá bara þangað til næst verið góð hvort við annað og knúsist InLove      knús & kramkveðjur amma bezta á skaganum


Það var aldeilis lengi síðan

NEEEEI var búinn að skrifa helling Crying ég verð þá bara að byrja attur Crying 

En sko váááá það eru sex mánuðir síðan ég var hér síðast !!! ROÐN ! Þá var ég á leiðinni til Baltimore, ég lofaði að skrifa um þá ferð en ég ættla bara að segja það að ferðin var ÆÐI og ég er ennþá að borga visa ! Og geri það með glöðu híííí LoL

Sko á þessu ári er sko búið að vera fullt að ske, Kristófer varð tveggja ára í febrúar og það var sko partý þar, Nesan mín fermdist í marz og tókst þeim mæðgum að halda aldeilis flotta veislu þar. Undran mín varð svo alltí einu þrjátíuára í mai og ég því orðin þrjátíu árum eldri Shocking Hann pabbi minn varð 85 ára og ekki má gleyma að hún Línsa mín frá sverige kom bara alltíeinu, já og ég vissi ekkert um það BARA birtist hér og ég alveg svimaði, en ég verð sko að vera á undan að fara til sverige að heimsækja hana annars vinnur hún veðmálið sem við gerðum hííí Pinch 

Hún mamma mín varð ofsalega veik og varð að fara á sjúkrahús þar sem hún fór í stóra aðgerð og þá varð ég sko hrædd og gerði mér sko grein fyrir því að það er barasta ekkert svo sjálfsagt að eiga foreldra, ég var ekkert búinn að hlúa neitt sérlega mikið að þeim en þarna setti ég hann pabba minn algjörlega í forgang í mínu lífi, hann pabbi var svo hræddur að nú myndi mamma sko skilja hann aleinann eftir, það var notanlegt að bara vera hjá honum og bara segja honum hvað ég elska þau bæði. Við nefnilega vitum ekkert hvenær okkar tími hér á jörðu líkur og það er sko eins gott að nota tímann vel.InLove Skrítið hvað það þarf alltaf að gefa manni svona pikk og þá fer mar að pæla í lífinu !

Jæja þá !! ég hef nú frá ýmislegu fleiru að segja það er svo margt sem skeður hjá svona ríkri konu já ég er ekkert smá RÍK !!! ég á svo marga gullamola  en er bara að hugsa um að geyma það og sko það verður ekki hálft ár í næstu færslu það skal ég lofa InLove

Já og svo er idol í kvöld eins gott að fara að hafa sig til fyrir Simon !! hahaha

Þangað til næst verið góð hvort við annað og knúsist oft InLove kveðja amma bezta lasarus !! en er alveg að battna Kissing


OG MUNA SVO !!!!

InLove  Frammhald á morgun ............thííííí.....thíííí ...........
 

Jæja þá !!

Jæja elsku vinir Grin Það er sko lengi síðan mín skrifaði hér,,,, en nú er sko tími á það nefnilega !!! Haldið ekki að mín sé barasta á leiðinni til BALTIMORE W00t veiiiiiii alla leið til Baltimor í USA veiiiiii W00tW00t    JAMM er að fara með dottlonum mínum og Hlínsu-pínsu í jólaleiðangur ! Skoooooooo þetta á nú bara að vera hin róleagsta stelpu ferð EVER InLove Bara mamman og strúttlurnar hí hí hí Whistling  Whistling En af mér er nú bara allt gott að frétta ég ér öll að koma til bara smá skökk eftir aðgerðina en það hlýtur nú að rétta sig, er stundum eins og amma Lilla var, en sko bara þegar ég brosi smæla !!!  Smile Ég fór að vinna strax tveim vikum eftir aðgerðina og ég held nú að ég hefði betur sleppt þeim víkinga siðum enda sögðu dottlurnar mínar að eftir þrjá daga væri ég svo þreytuleg, en sonna er ég.InLove  Ekki meira væl um þaððððððððððð. En á morgun verðum við mæðgur alveg brjááál í einhverju molli í Baltimore sem er opið til kl 23 og.... og.... mér hlakkar ekkert smááááááá tiiiil Sick Það er sko áættluð lending um kl. 18 .......... ef að allt verður ekki komið á kaf þarna ??En það er víst búið að vera alveg brjáál veður og hir æ kommmmmmmmmm. Hér á bæjum er sko búið að vera töskusöfnun því allar fjórar verða sko! (takið eftir ) VERÐA ! að hafa tvær töskur sem á að troð fylla af einhverju !!!!!!!!! já bara einhverju, jólagjafir, föt, ylmkrem og bara allt sem við kanski þurfum voða, voða mikið  eða þannig, ég er sko alveg að fíla þetta Halo Eg ætla líka að segja ykkur að ég er sko flughræddasta kona sem sem til er EVER ! og er alveg svakalega skelkuð af MÉR ! að geta hlakkað svona til að vera að fara í ferð með flugvél Sick En sko þar sem ég er sjálfkjörinn ritari í POLLÝÖNNUKLÚBBNUM þá ætla ég að vera líka eins og randafluga og segja frá ÖLLU........Police Og frá og með, hér og nú hefst ferðasagan af FJÓRUM POLLÝÖNNUM allaleið frá akranesi......Elsku vinir ég ættla nú að leggja mig aðeins fyrir ferðalagið og bið góðan Guð að varðveita ykkur og gefa okkur heimsins skemmtilegustu ferð á morgun allaleið til baltí........

lovjú öll kveðja  amma bezta frá skaganum InLove


Smá lasarussar saga !!!

JÆJA komiði öllsömul sæl og blessuð, ég reyndar kom heim eftir aðgerðina seinnipartinn á laugardag og sem sagt allt gekk bara vel. Ég var svo rasandi hissa á að ég gubbaði ekkert sko mér var ekki einusinni flökurt : alveg HISSA !! Ég var komin á ról strax um kvöldið og fékk góðar heimsóknr hún mammsan mín kom og svo gullamolarnir mínir sem eru alveg að verða skagamenn, og mér fanst þetta bara písofkeik ! En ég var náttlega bara svo deifð á pillu rússi og fékk svo bara að finna fyrir öllu á laugardaginn en heim fór ég og ég var svo mikill jaxl að ég fór í kirkju á sunnudags morguninn með gullamolana mína sem löngu eru örðin skagamenn og hafði þau hjá mér allann sunnudaginn. Já við fórum í svaka jólafíling hér heima það var föndrað jólakort og leirað alveg helling. Svo fann ammsa bezta sko fyrir þreytu um kvöldið já varð sko að fara snemma í rúmmið alveg búinn á því, og ég finn að ég verð aðeins að taka því rólega Halo Ég er með 4cm skurð á hálsinum og lítur þetta heldur ógeð út það er svo mikið storknað blóð út um allt og ég get ekki beðið eftir að fá að hreinsa sárið en er að hugsa um að láta það bara vera þar til saumarnir verða teknir eða til mánudags ! sjáum hvernig það gengur. Svo er munnurinn soldið skakkur og ég er dofin í tungunni en það er örugglega vegna þess að ég er svo bólgin og svo get ég ekki sungið ! nei ég hef enga stjórn á röddini ??? Ég er örugglega bara í mútum !! Crying ég bara verð svona skræk ef ég reyni á röddina ? En þetta kemur alltsaman með tímanum þegar bólgurnar fara VONANDI !!

Ég fylgdist með bænagöngunni í útvarpinu Lindinni og svo er ég búinn að heimsækja heimasíðuna hjá hvítasunnukirkjunni á selfossi og þar sá ég myndir frá göngunni, þau á Selfossi eru svo dugleg með síðuna sína ég fer oft þar inn það er svo frábært allt starfið þar og svo er hægt að sjá pínu af tónleikunum hjá krossinum og naut ég þess. Ég nebblega hélt að það mundi koma eitthvað í fréttum í sjónvarpinu frá göngunni, nei það þótti víst ekkert fréttaefni???? Angry (við erum ekki nógu hommaleg) ég bara segi það !!! Angry 

JAMM svona er nú það ég bara er heima og reyni að taka það rólega !OOO mundi svo vilja gera þessa síðu eitthvað flottari en kann það ekki, Kata kanski ég ætti að fá ráðleggingar frá þér þín síða er svo flott ! Skrifa kanski eitthvað meira hér í dag en þangað til Guð varðveiti ykkur , lovjú lovjú  amma BEZTA á skaganum InLoveInLoveInLoveInLove


Fastan að skella á !

Upgrade your email with 1000's of emoticon iconsJæja þá eru nákvæmlega fjörutíu minótur þar til fastan birjar. Jamm þetta er alveg að skella á. Ég er að hugsa um að vaka til kl tólf og eta og drekka eins og ég get, svo ætla ég að fara að leggja mig og reyna að sofa sonna til hálf sex, þá ætla ég að fara og sturta mig og sjæna eins og ég má, aðeins að fara yfir farangurinn og svo má hann Jóel minn vakna. Já við bara ákváðum að sofa hér heima í nótt og hann ætlar bara að keyra mig til RVK  ég á að vera mætt kl hálf átta á borgó- spítalann. Ég vona að ég verði nr 1 í aðgerð því þá ætti allt að vera búið um hádegi og svo bara get ég legið og latað mig, já rægth ég gleimdi að gera ráð fyrir verkjum, ne ne ne fer nú ekkert að bæta þeim hér inn, sko það er búið að plana allt. OG svo bara verð ég kanski kominn heim á sunnudaginn , ef allt fer eins og er  planað . Sko þegar maður leggur allt í Guðs hendur þá stenst allt og ég er sko búinn að þvíHeart Gleymi mér bara stundum , það má alveg InLove En esskurnar nú er klukkan alveg að verða tólf og ég á eftir að borða eitt súkkulaði og drekka heil osköp að vatni svo ég er að hugsa að láta þetta væl í mér bara duga. Segi ykkur svo frá "kanski á sunnudaginn" þangað til góður guð varðveiti ykkur  og verið nú dugleg að knúsast Halo Ég sendi ykkur hér RISA RISA knús frá mér. Síiiijúúú   amma BEZTA á skaganum   Big Hug 

 

 








USCHANNAMEJ !!!

Jæja þá jæja eða Uschannamej ! eins og er voða poppís hjá mér þessa dagana. Haldið ekki að ég sé kominn með halsfluss !!!!! og þá segir maður nú barasta uschannamej Sick Þegar ég vaknaði í morgun þá var ég svo veik í hálsinum mínum, það var eins og ég væri að reyna að kyngja rakvélablöðun "usch" og ég sem á loxins að fara í aðgerðina á föstudag út af þessum blessaða munnvatnskyrtli og hélt nú að þessi veikindi mín væru alveg að hverfa já ég segi nú bara USCHANNAMEJ Angry Og svo að vera frá vinnu einusinni ennnnnnnn æjabæja !  En hvað getur maður svo sem gert annað en að verða spældur og segja usch!? Morguninn er búinn að fara í að ná tali af doktor og endaði ég á að senda mail til Þóris Bergmunds, hann þekkir sko mína sögu og er búinn að vera að koma mér inn í þessa aðgerð OG hann klikkar sko ekki þessi PERLA, svo nú er ég að bíða eftir henni Undru minni því hún ættlar að fara í apótekið fyrir mömmslu sín. Æ..Æ.. yndislegar dottlurnar mínar InLove Svo bara vona ég að ég haldi áættlun með þessa aðgerð oog fari nú að hoppa upp úr þessu veikindasleni mínu, þetta er nú alveg að verða gott þetta árið. Já uschannamej !!!!  Jamm ættla nú bara að setja á mig hálsklút og skríða undir sæng, fara með góða bæn,  sötra á hoot panodil og lesa í biblíunni já og bara stúdera soldið, það er heimahópur í kvöld og ég er sko búinn að bíða eftir að fara en ég veit ekki hvort ég hafi nú heilsu í það ? Ég veit ekki hvort ég hafi sagt ykkur frá því að ég er í heimahóp, svona konuheimahóp bara konur !! sem er hjá Erlu, og hittumst við á hálfsmánaðar fresti og þetta er bara æðisleg stund, sko stund sem enginn vill missa af. Kanski lauma ég mér usssssssHalo  En allavega nú ætla ég að skríða undir sæng, þangað til næst guð blessi ykkur Heart Og elsku Biggi minn vonandi hef ég nú tekið mig á í ypsilonunum "alla vegana hætt að setja ypselon í kirkju" Whistling              lovjú all  amma BEZTA  InLoveInLove


áminning !!!!!!

EKKI
NEMA 49 DAGAR TIL JÓLA !!!!!!!! 

                                   Vildi nú bara minna aðeins á það !!!!!
álfarass              AMMA BEZTA Á SKAGANUM InLove


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband